Á
Hvítárbakka í Borgarfirði hefur verið
ýmiss konar starfsemi í gegnum árin. Á
Hvítárbakka var t.d. skóli frá árinu
1905 til ársins 1931. Hvítárbakkaskóli
var starfræktur með lýðháskólasniði
þar til hann fluttist í Reykholt.
Árið
1998 var svo aftur staðsettur skóli á Hvítárbakka
en hann var í tengslum við Meðferðarheimili
fyrir unglinga sem var þar staðsett allt fram til ársins
2007.
Einnig
hefur verið búskapur og hrossarækt á Hvítárbakka.
Nú er allur búskapur lagður af en kornrækt
er stunduð þar og túnum haldið við.
Á
Vesturlandi eru margir áhugaverðir staðir, sem
vert er að skoða og í nágrenni Gistiheimilisins.
Þú getur stoppað í nokkra daga og alltaf
nóg að skoða - kíktu
á þessa síðu
Nokkrir
áhugaverðir staðir og fjarlægðir frá
Gistiheimilinu:
Ullarselið
á Hvanneyri -
15 km fjarlægð
Deildartunguhver
- 16 km. fjarlægð
Reykholt
og Snorralaug - 20 km fjarlægð
Hraunfossar
- . 37 km fjarlægð
Víðgelmir
í Fljótstungulandi - 50 km fjarlægð
Surtshellir
í Hallmundarhrauni - 57 km fjarlægð
Grábrók
og Baula - 40 km.
Sundlaugar
eru nokkrar - sundlaugin í Borgarnesi í 30 km fj.
og sundlaugin á Kleppjárnsreykjum í 15 km
fj. þá er Hreppslaug í 15 km fjarlægð
og sundlaugin í Húsafelli er í ca. 40 km
fjarlægð.
Rétt
fyrir utan Borgarnes er einn fallegasti golfvöllur
landsins. Einnig er golfvöllur í Húsafelli.
Veiðiár
eru ekki ófáar í Borgarfirði og má
þar nefna Grímsá í aðeins 5 km
fjarlægð, Andakílsá í 8 km fjarlægð,
Flókadalsá í 5 km fjarlægð. Þá
eru ýmiss vötn ekki svo langt frá eins og Blundsvatn
í 4 km fjarlægð, Reyðarvatn í Lundareykjadal,
Skorradalsvatn og fl.