Gistiheimilið
Milli Vina er á Hvítár--bakka í Borgarfirði.
Ef
ekið er frá Reykjavík um Hval--fjarðargöng
til Hvítárbakka er leiðin u.þ.b. 90 km löng.
Leiðin er öll mal-bikuð fyrir utan síðustu
4 km.
Leiðarvísir
hér til hægri sýnir leiðina í grófum
dráttum. Fyrst er ekið eftir vegi nr. 1
þar til komið er að vegi nr. 50,
sem liggur til hægri( beygt út af vegi nr. 1 rétt
áður en komið er að Borgarfjarðarbrú).
Vegur nr.50 vísar á Hvanneyri og Reykholt. Ekið
er eftir þessum vegi í u.þ.b. 23 km eða nánar
tiltekið að vegi merktum Bæjarsveit og Hvítárbakka,
vegur númer 513. Þar er tekið
til vinstri og ekið í u.þ.b. 500 metra og þá
aftur tekið til vinstri niður veg 514 að
Hvítárbakka. Vegur 514 er malarvegur og er u.þ.b.
4 km langur.
Gistiheimilið
Milli Vina er í fyrsta húsinu sem komið er að
á Hvítárbakka; brúnt hús með
rauðu þaki. Í næsta húsi, sem er hvítt
stórt hús eru lyklarnir sóttir.
|