til baka
 
 
 
 
 
 
 

 

Gistiheimilið Milli Vina

Leiguskilmálar

Skyldur leigutaka
1. Leigutaki skal skila húsinu á eftirfarandi máta:
a. Húsinu ásamt öllum fylgihlutum í sama ásigkomulagi og það var við móttöku.
b. Á tilskildum tíma samkvæmt samningi .
2. Leigutaki fær húsið afhent hreint. Skal leigutaki skila húsinu af sér hreinu. Skal hann þrífa vel eftir sig, þ.m.t. ísskáp, eldavél og ofn, salerni, grill og skúra gólf. Loka skal gluggum og hurðum vandlega. Leigutaki getur keypt þrif en skal engu að síður skila húsinu þrifalegu og gæta þess að taka með sér allt sorp við brottför.
Ef vanhöld eru varðandi þrif getur komið til þess að húsið verði þrifið á kostnað leigutaka.

3. Leigutaka er óheimilt að hafa í húsinu fleiri gesti en um var samið. Meiri fjöldi gesta en sem gefið hefur verið upp er háð samþykki leigusala. Brot á þessari reglu getur þýtt brottvikningu úr húsi.

5. Leigutaki hafi greitt fyrir húsið við komu. Öll gjöld sem leigusali kann að verða fyrir vegna notkunar eða skemmda leigutaka af hinu leigða húsnæði skal leigutaki greiða.
6. Leigutaka er óheimilt að láta fara fram viðgerðir eða breytingar á hinu leigða húsnæði og fylgihlutum þess án áður fengins samþykkis leigusala.
7. Leigutaka er óheimilt að lána húsið eða framleigja það.

8. Óheimilt er að vera með dýr innandyra í húsnæðinu. Brot á þessari reglu getur þýtt brottvikningu úr húsi.
9. Reykingar innandyra eru með öllu bannaðar. Reykingar eru aðeins leyfðar utandyra.

o Tryggingar
10. Leigutaki ber ábyrgð á húsnæðinu og öllum munum þess og tækjum.
Það sem leigutaki ábyrgist er:
a. Skemmdir af ásettu ráði eða sakir stórkostlegri óvarkárni.
b. Skemmdir sem verða þegar leigutaki er undir áhrifum áfengis, örvunar, eða deyfilyfja.
d. Skemmdir af völdum dýra,
e. Brunagöt í stólum, sófum, teppum, dýnum og borðum.
f. Skemmdir er varða rafmagnstæki.
g. Allar aðrar skemmdir sem valda leigusala kostnaði.

Leigutaki ber ábyrgð á að farið sé eftir reglum þessum og verði skaði vegna brota á reglum þessum er það alfarið á ábyrgð leigutaka. Leigutaki skal ekki vera yngri en 25 ára.


• Almenn ákvæði
Um samninga þá sem gerðir eru á grundvelli ofangreindra skilmála, þar með talið bótakröfur sem eftir atvikum kunna að vera gerðar, fer að íslenskum lögum. Gildir það bæði um grundvöll og útreikning bóta. Sama gildir um bótakröfur á grundvelli bótaábyrgðar utan samninga. Rísi mál út af leigusamningi þessum skal málið rekið fyrir varnarþingi leigusala.
Bent skal á að skjóta má ágreiningsmálum samningsaðila leigusamnings þessa til starfsandi úrskurðarnefndar Neytendasamtakanna og Samtaka ferðaþjónustunnar.

Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrum lausamunum.
• Húsinu fylgir efni til þrifa, uppþvottalögur og burstar, gólfsápa, salernispappír og salernishreinsir. Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústur.


• Skylt er að þrífa húsið með því að sópa gólf, skúra allar vistaverur, ryksuga teppi, þurrka af öllum borðum, þurrka úr gluggum, skila eldhúsi eins og komið er að því (þrífa ísskáp, ofn, grill..)og skúra þar gólfið, þrifa wc, bæði skúra og þrifa salerni, taka allt rusl úr ruslafötum og almennt taka allt rusl, flöskur og dósir með sér við brottför.

Gistiheimilið býður upp á notalega þjónustu og góðan anda
Gistiheimilið Milli Vina Menntasetur, Hvítárbakka Borgarfirði, s. 435 1530, netf. millivina@millivina.is