|
Gistiheimilið
Milli Vina hóf starfsemi sína árið 2001
að Hvítárbakka í Borgarfirði (u.þ.b.
90 km frá Reykjavík).
Boðið
er upp á 6 tveggja manna herbergi með góðum
rúmum, aðgangi að stofu, borðstofu, sjónvarpsholi,
þremur baðherbergjum og rúmgóðu eldhúsi.
Jafnframt eru í húsinu tveir tvíbreiðir
svefnsófar í stofu. Í kringum húsið
er gróinn garður. Heitur pottur er á staðnum.
Í bílskúr við hliðina á húsinu
er snókerborð í fullri stærð. Húsið
er tvílyft timburhús með kvistum.
Nánari
lýsing á húsi:
Á
efri hæð hússins eru 5 tveggja manna svefnherbergi,
sameiginleg snyrting með baði. Í hverju herbergi
eru tvö náttborð, tveir stólar, fatahengi,
hilla, skóhilla, borðlampar, spegill og myndir.
Á
neðri hæð hússins er stofa með borðstofukrók
með borðstofuborði fyrir 16 manns, tveir tvíbreiðir
svefnsófar, lampar, myndir og fleira. Eldhús með
öllum borðbúnaði og eldhúsáhöldum.
Sjónvarpskrókur, leðurhornsófi fyrir 7-9
mann; sjónvarp. Svefnherbergi fyrir tvo, með borði,
stól, fatahengi, spegli, borðlampa, lestrarljósi,
skóhillu og hillu. Baðherbergi með sturtu. Sturtuherbergi,
tvær sturtur, salerni, tengt potti sem er staðsettur í
garði sunnan við húsið.
Við
hliðina á húsinu er stór bílskúr
með snókerborð í fullri stærð(eingöngu
ætlað fullorðnum). Í kringum húsið
er garður með heitum potti.
Boðið
er upp á morgunmat og mat fyrir þá sem það
vilja (það þarf að panta fyrirfram).
Húsið
er leigt út fyrir einstaklinga og í heild sinni og
er tilvalinn staður fyrir 12-16 manna hópa.
Reykingar
eru ekki leyfðar inni í húsinu. Mikilvægt
að kynna sér reglur staðarins - sjá
reglur |