Gistiheimilið Milli Vina

Verðlisti frá 1.mars - 31.desember ágúst 2010

 

Tveggja manna herbergi

ísl. krónur

sumar

 

verð með morgunmat

einn fullorðinn í herbergi 9.000  
tveir fullorðnir í herbergi 13.000 fyrir tvo
     
barn á dýnu með tveimur full. 4.000 * hálfvirði ef það er ekki uppábúið
Tveggjarétta kvöldverður 3.500 panta a.m.k.sólahring áður
Þriggjarétta kvöldverður 4.500 panta a.m.k. sólahring áður

Í hverju herbergi eru tvö uppábúin rúm(hægt að hafa þau sem hjónarúm). Innifalið í verðinu eru einnig tvö handklæði per mann og sloppur. Aðgangur að sameiginlegri stofu, eldhúsi, sjónvarpi og heitum potti(einnig innifalið í verðinu). Komutími er kl.16. og brottför kl.12. Greiða þarf staðfestingargjald sem er óafturkræft(eða við komu sé um það samið). Ekki hægt að greiða með kredit eða debitkorti. Greiða þarf með peningum eða leggja inn á reikning fyrirfram.

Ef þú hefur áhuga á að panta húsið skrifaðu okkur póst

* Börn 4 ára og yngri fá morgunmat frítt, en börn 5 til 12 ára greiða 800 krónur. Börn undir 4 ára aldri gista frítt ef þau fá ekki sér rúm. Barn með fullorðnum í herbergi greiðir fullt gjald sé hann í uppábúnu rúmi.

Hægt er að leigja húsið í heild yfir vetrartímann og eru þá í gildi aðrir skilmálar. Verð per fyrstu nótt er 43.000 krónur og næsta nótt kostar 22.000 krónur. Aukalega 9.000 krónur fyrir þrif. Húsið er uppábúið fyrir 12 manns og gildir verðið miðað við þann fjölda. Leyfilegt er að vera fleiri í húsinu(upp á 16 manns) án þess að tekið sé aukagjald. Sé hópurinn fleiri en 16 manns þarf að greiða 500 krónur per. mann per. nótt (samt. 1000 krónur fyrir hvern umfram 16 yfir helgina). Börn 4 ára og yngri fá frítt. Ekki er leyfilegt að vera fleiri í húsinu en 16 nema sérstakelga sé um það samið!!!

Sjá reglur

Sérstaklega þarf að greiða fyrir not af snókerborði í bílskúr, en það er 3.000 krónur fyrir helgina ef um hóp er að ræða.

Hópum gefst einnig kostur á að fá fræðslu- og skemmtipakka; s.s. fyrirlestur og leik um að hlúa að sjálfum sér, fyrirlestur um forvarnir, foreldrahlutverkið, vellíðan á vinnustað svo eitthvað sé nefnt(þarf að semja um þetta fyrirfram).

Þegar hópur leigir húsið er gert ráð fyrir að leigutaki þrífi eftir sig eða kaupi þrif á húsinu fyrir 9.þúsund krónur. (Sé um óeðlilega mikil óhreiningi að ræða eftir helgarleigu verður krafist auka þóknunar og einnig fyrir skemmdir á staðnum - hlutum eða húsmunum.)Þegar húsið er leigt í heild er gert ráð fyrir að gestir skili húsinu í sama ástandi og komið var að því kaupi þeir þrif en annars skili því þrifalegu og ætlast er til þess að uppvaski í eldhúsi sé lokið fyrir brottför. Gestir eru beðnir að taka með sér allt sorp við brottför.

Hafið samband ef þið viljið frekari upplýsingar um verð og þjónustu til okkar á Hvítárbakka í Borgarfirði í neffangi millivina@millivina.is eða í símum 435 1530, 861 3260 og 893 3260 (Sigurður Ragnarsson og Inga Stefánsdóttir).Allur réttur áskilinn til breytinga.

 

Gistiheimilið býður upp á notalega þjónustu og góðan anda
Gistiheimilið Milli Vina, Hvítárbakka Borgarfirði, s. 435 1530, netf. millivina@millivina.is